Eign – Aldurstengd

Einstaklingur tekur mynd með myndavél í stofu heima

Eign – Aldurstengd er tilvalin fyrir þá sem vilja tryggja að þeir séu í þeirri fjárfestingarleið sem hentar þeirra aldri.

Sækja um séreign hjá Gildi

Svona virkar Eign – Aldurstengd

Í Eign – Aldurstengd færist þú milli fjárfestingarleiða eftir aldri. Fram til 48 ára aldurs er inneign þín ávöxtuð í Eign – 70/30 en í henni liggja 70% eigna í hlutabréfum og 30% í skuldabréfum.

Eftir því sem þú eldist færist áhersla frá hlutabréfum og yfir á skuldabréf. Þegar þú nærð 58 ára aldri er inneign þín ávöxtuð þannig að 20% eru í hlutabréfum en 80% í skuldabréfum.

Skýringarmynd af Eign – Aldurstengd: undir 48 ára er sparnaðurinn í Eign – 70/30, frá 48 til 57 ára í Eign – 50/50 og frá 58 ára aldri í Eign – 20/80.

Ástæðan fyrir þessu er að þegar fjármunir eru ávaxtaðir yfir langan tíma er ráðlagt að vera með hátt hlutfall eigna bundið í hlutabréfum. Þar eru sveiflur í ávöxtun miklar en langtímaávöxtun hærri en í öðrum eignarflokkum.

Þegar líður á ævina og það styttist í úttekt á þinni Eign er ráðlagt að minnka áhersluna á hlutabréf og auka áherslu á skuldabréf. Þar eru sveiflur minni og vænt ávöxtun ennþá góð.