Eign – 70/30

Í Eign – 70/30 eru 70% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 30% í skuldabréfum.
Leiðin hentar þeim sem vilja taka meiri áhættu með von um aukna ávöxtun yfir lengri tíma.
Eign - 70/30 er ný fjárfestingarleið hjá Gildi þannig að upplýsingar um ávöxtun aftur í tímann liggja ekki fyrir.
Fjárfestingastefna
Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign – 70/30. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.
Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingastefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan.
| Verðbréfaflokkur | Stefna | Heimilað frávik - lágmark | Heimilað frávik - hámark |
|---|---|---|---|
| Skuldabréf | 30,0% | 20,0% | 40,0% |
| - Innlán og laust fé | 1,0% | 0,0% | 15,0% |
| - Ríkisskuldabréf | 9,0% | 5,0% | 35,0% |
| - Skuldabréf fjármálafyrirtækja | 8,0% | 0,0% | 14,0% |
| - Veðskuldabréf | 0,0% | 0,0% | 5,0% |
| - Skuldabréf sveitarfélaga | 3,0% | 0,0% | 10,0% |
| - Skuldabréf fyrirtækja | 7,0% | 0,0% | 13,0% |
| - Erlend skuldabréf | 2,0% | 0,0% | 8,0% |
| Hlutabréf | 70,0% | 60,0% | 80,0% |
| - Innlend hlutabréf | 30,0% | 0,0% | 44,0% |
| - Erlend hlutabréf | 40,0% | 20,0% | 64,5% |
| SAMTALS: | 100,0% |
Lykilupplýsingar:
Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign – 70/30 hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.