Eign – 50/50

Fjárfestingarleið sem meðal annars er hugsuð fyrir yngri einstaklinga sem eru að hefja söfnun séreignarsparnaðar sem og fólk á miðjum aldri.
Í Eign 50/50 eru 50% safnsins að jafnaði í hlutabréfum og 50% í skuldabréfum.
Jöfn skipting hlutabréfa og skuldabréfa þýðir að leiðin hentar þeim sem vilja góða ávöxtun yfir lengri tíma en um leið takmarka áhættu.
Vakin er athygli á ávöxtunarleiðin hét áður Framtíðarsýn 1 en nafninu var breytt um mitt ár 2026. Um leið var fjárfestingarstefnu leiðarinnar breytt þannig að hlutfall hlutabréfa hækkaði úr 35% í 50% og hlutfall skuldabréfa lækkaði úr 65% í 50%.
Ávöxtun
Þegar séreign er ávöxtuð í jafnvel áratugi, þarf að horfa sérstaklega vel á ávöxtun yfir lengra tímabil. Þar þarf einnig að hafa í huga mun á raunávöxtun og nafnávöxtun.
Nafnávöxtun sýnir hversu mikið eign hefur vaxið í krónum án tillits til verðbólgu. Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu og kostnaði. Hún sýnir þá hækkun á raunvirði.
Nafnávöxtun
Síðustu 12 mánuði
3,6%
3 ára meðaltal
7,1%
5 ára meðaltal
3,3%
Hrein raun- og nafnávöxtun
Hér má sjá hreina nafn- og raunávöxtun Eignar - 50/50 árið 2025 en einnig 5 og 10 ára meðaltal frá lokum árs 2025.
Hrein nafn- og raunávöxtun Eignar – 50/50.
Munur á raun- og nafnávöxtun (dæmi):
Þú átt 100.000 krónur og leggur inn á bankabók með 10% vöxtum. Eftir ár áttu 110.000 krónur. Nafnávöxtun er því 10.000 krónur.
Á þessu ári var verðbólga 5% sem dregst frá nafnávöxtuninni. Formúlan til að reikna hana út er nafnávöxtun deilt með verðbólgu - sem gefur í þessu tilfelli 4,76. Það þýðir að 100.000 krónurnar hafa vaxtið í verðmæti um 4,76% eða um 4.760 krónur.
Gengi
Einföld leið til að átta sig á ávöxtun eignasafns í Eign – 50/50 er að skoða gengisþróun síðustu ára. Gengi fjárfestingarleiðarinnar (áður Framtíðarsýn 1) hefur þróast með eftirfarandi hætti frá árinu 1999.
Fjárfestingastefna
Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign – 50/50. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.
Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingarstefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan. Þar má einnig finna upplýsingar um eignasamsetningu fjárfestingaleiðarinnar í lok mars 2026.
| Verðbréfaflokkur | Eignir 31.03.2026 | Stefna 2026 | Heimilað frávik - lágmark | Heimilað frávik - hámark |
|---|---|---|---|---|
| Skuldabréf | 65,7% | 50,0% | 40,0% | 60,0% |
| - Innlán og laust fé | 1,9% | 1,0% | 0,0% | 15,0% |
| - Skuldabréf með ábyrgð ríkisins | 18,4% | 14,0% | 7,0% | 52,0% |
| - Skuldabréf fjármálafyrirtækja | 18,4% | 14,0% | 0,0% | 21,0% |
| - Veðskuldabréf | 0,0% | 0,0% | 0,0% | 8,0% |
| - Skuldabréf sveitarfélaga | 6,2% | 5,0% | 0,0% | 8,0% |
| - Skuldabréf fyrirtækja | 17,7% | 13,0% | 0,0% | 19,0% |
| - Erlend skuldabréf | 3,1% | 3,0% | 0,0% | 12,0% |
| Hlutabréf | 34,3% | 50,0% | 40,0% | 60,0% |
| - Innlend hlutabréf | 13,6% | 21,0% | 0,0% | 33,0% |
| - Erlend hlutabréf | 20,7% | 29,0% | 15,0% | 53,0% |
| Samtals | 100% | 100% |
Lykilupplýsingar:
Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign – 50/50 hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.