Um nokkurra ára skeið sá Gildi um innheimtu stéttarfélagsiðgjalda fyrir verkalýðsfélögin Eflingu, Hlíf og Félag Hársnyrtisveina, sem nú er gengið inn í Félag iðn- og tæknigreina (FIT).
Umrædd stéttarfélög hafa nú tekið við innheimtunni og er launagreiðendum bent á að leita sér upplýsinga um fyrirkomulag hennar t.d. á heimasíðu viðkomandi félags.