Gildi lífeyrissjóður leggur áherslu á að iðgjöldum sé skilað á rafrænan hátt bæði til öryggis og einföldunar. Ætlunin er að öll slík skil verði rafræn hjá sjóðnum hið fyrsta og því óskar Gildi eftir að launagreiðendur tileinki sér þau.
Hægt er að senda inn skilagreinar beint úr launakerfum eða skrá inn skilagreinar á launagreiðendavef. Við viljum benda launagreiðendum á að í handbókum launakerfa eiga að vera greinargóðar upplýsingar um uppsetningu á sendingu rafrænna skilagreina. Einnig veita flest hugbúnaðarfyrirtæki aðstoð ef þörf er á vegna slíkra sendinga úr launakerfum.
Launagreiðendur þurfa að nota veflykil til að senda skilagreinar beint út launakerfi og gildir sami veflykill fyrir launagreiðendavefinn. Hægt er að sækja um hann með því að smella á hlekk hér fyrir neðan og smella á „Sækja um aðgang að vef“. Þá er slegin inn kennitala launagreiðanda og veflykill er þá sendur í netbanka launagreiðanda. Þar birtist hann undir „Yfirlit – Rafræn skjöl“ eða „Netyfirlit“ undir heitinu „Lykilorð frá Gildi-lífeyrissjóði“.
Ath. að veflyklar eru hvorki gefnir upp í síma né sendir í tölvupósti.
Bókarar geta sent inn skilagreinar fyrir alla viðskiptavini sína á sama veflyklinum. Nánari upplýsingar veita starfsmenn iðgjaldadeildar Gildis. Vinsamlega hafið samband í síma 515 4700 eða sendið tölvupóst á netfangið idgjold@gildi.is.“
Á launagreiðendavef Gildis er hægt að finna upplýsingar um iðgjaldaskil og stöðu fyrirtækja gagnvart sjóðnum. Einnig er þar hægt á einfaldan hátt að skila inn skilagreinum. Sjóðurinn hvetur launagreiðendur til að nýta launagreiðendavefinn. Hægt að nýta rafrænt skilríki til að skrá sig inn á vefinn eða nota veflykil.
Ávinningur launagreiðenda af rafrænum skilagreinum
Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk iðgjaldadeildar Gildis í síma 515-4700 / netf.: idgjold@gildi.is