Aðalfundur Skaga hf. árið 2026
Aðalfundur Skaga hf. árið 2026 var haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 17. mars.
| Dagskrárliður | Lagt fram af | Afgreiðsla* |
|---|---|---|
| Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2025. | Stjórn | Til kynningar |
| Stjórnin leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins. | Stjórn | Samþykkt |
| Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig fara skuli með hagnað félagsins og greiðslu arðs. | Stjórn | Samþykkt |
| Samþykkt starfskjarastefnu félagsins. | Stjórn | Samþykkt |
| Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. | Stjórn | Á móti** |
| Ákvörðun um þóknun til stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar. | Stjórn | Samþykkt |
| Kosning stjórnar félagsins. | Sjálfkjörið | |
| Kosning endurskoðunarfélags. | Stjórn | Samþykkt |
| Kosning tilnefningarnefndar félagsins. | Stjórn | Sjálfkjörið |
| Kosning nefndarmanns í endurskoðunarnefnd félagsins. | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum. | Stjórn | Samþykkt |
*Afgreiðsla fulltrúa Gildis á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.