5. janúar 2024

Nýr framkvæmdastjóri hjá Gildi-lífeyrissjóði

Davíð Rúdólfsson tók um áramótin við stöðu framkvæmdastjóra Gildis-lífeyrissjóðs af Árna Guðmundssyni. Um leið tók Rósa Björgvinsdóttir við stöðu forstöðumanns eignastýringar Gildis og Árni Hrafn Gunnarsson yfirlögfræðingur var gerður að staðgengli framkvæmdastjóra.

Davíð Rúdólfsson hefur starfað hjá Gildi frá árinu 2008, þar af sem forstöðumaður eignastýringar sjóðsins frá árinu 2010. Hann hefur jafnframt gegnt hlutverki staðgengils framkvæmdastjóra sjóðsins frá árinu 2016. Davíð hefur 23 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði og starfaði áður m.a. hjá Íslandsbanka, Kaupþingi og Gnúpi Fjárfestingafélagi. Davíð er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði, hefur lokið CFA vottun (Chartered Financial Analyst) og er með verðbréfaréttindi.

Rósa Björgvinsdóttir hóf störf hjá Gildi í lok síðasta árs en hún var áður forstöðumaður skuldabréfa hjá Landsbréfum hf., starfaði sem sjóðstjóri hjá Landsvaka og á eignastýringarsviði Landsbankans. Rósa er með B.Sc í viðskiptafræði með áherslu á fjármál og hagfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá sama skóla. Hún hefur einnig hlotið vottun frá PRI í ábyrgum fjárfestingum og lokið verðbréfaréttindaprófi.

Árni Hrafn Gunnarsson hefur starfað hjá Gildi frá árinu 2015 sem yfirlögfræðingur. Fyrir það starfaði hann við lögfræðiráðgjöf og í fyrirtækjaráðgjöf hjá Straumi fjárfestingabanka, Glitni banka og Íslandsbanka. Árni útskrifaðist árið 2005 með cand. juris gráðu í lögfræði ásamt því að hafa lögmannsréttindi og verðbréfaréttindi.

Árni Guðmundsson starfaði í lífeyriskerfinu frá árinu 1982 þegar hann tók við starfi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs sjómanna að loknu lögfræðiprófi. Við stofnun Gildis-lífeyrissjóðs, sem varð til við sameiningu Lífeyrissjóðs sjómanna og Lífeyrissjóðsins Framsýnar árið 2005, var Árni ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins. Árni hefur ekki alveg sagt skilið við sjóðinn því hann mun verða nýjum stjórnendum til ráðgjafar næstu níu mánuði samkvæmt samkomulagi við stjórn sjóðsins.


Árni Guðmundsson og Davíð Rúdólfsson

Davíð Rúdólfsson tók um áramót við stöðu framkvæmdastjóra Gildis af Árna Guðmundssyni


Þrír nýir stjórnendur hjá Gildi

Rósa Björgvinsdóttir, Davíð Rúdólfsson og Árni Hrafn Gunnarsson.