Óvænt áfall
Með því að greiða iðgjald í samtryggingardeild lífeyrissjóðs ávinnur fólk sér ýmis réttindi. Þegar þar að kemur fær viðkomandi ellilífeyri en einnig tryggir iðgjaldið örorku-, maka– eða barnalífeyri ef svo ber undir.
Segja má að með samtryggingunni tryggi sjóðfélagar í sameiningu hver öðrum ellilífeyri til æviloka. Hið sama gildir ef sjóðfélagi verður fyrir tekjumissi vegna varanlegrar skerðingar á starfsgetu. Ef hann fellur frá þá geta eftirlifandi maki eða börn jafnframt átt rétt á lífeyrisgreiðslum um tiltekinn tíma.