Gildi merki

Fjárfestingarstefna

Í fjárfestingarstefnu samtryggingardeildar Gildis fyrir árið 2022 er lagt upp með að auka við samanlagt vægi hlutabréfa og draga á móti úr samanlögðu vægi skuldabréfa. Hlutfall innlendra hlutabréfa og skuldabréfa með ábyrgð ríkisins er hækkað frá fyrri stefnu en á móti lækkar viðmið stefnunnar fyrir veðskuldabréf, skuldabréf fyrirtækja og erlendra skuldabréfa. Áfram er þó lögð áhersla á að auka við vægi veðskuldabréfa og skuldabréfa fyrirtækja frá því sem nú er. Undir aðrar fjárfestingar í stefnunni heyra erlendir fasteignasjóðir og erlendir innviðasjóðir, auk erlendra vogunarsjóða sem eru í innlausnarferli. Í stefnunni er lagt upp með að vægi eigna í erlendri mynt verði 39% og er það óbreytt frá fyrri stefnu.

VerðbréfaflokkurStefna 2022LágmarkHámark
Innlán0,5%0%10,0%
Skuldabréf46,5%35,0%65,0%
Skuldabréf með ábyrgð ríkisins18,5%12,0%27,0%
Skuldabréf banka og sparisjóða7,0%3,0%11,0%
Veðskuldabréf10,0%2,0%16,0%
Skuldabréf sveitarfélaga2,0%0%5,0%
Skuldabréf fyrirtækja7,0%2,0%14,0%
Erlendir skammtímasjóðir0%0%10,0%
Erlend skuldabréf2,0%0,0%12,0%
Hlutabréf52,0%35,0%60,0%
Innlend hlutabréf21,0%11,0%28,0%
Erlend hlutabréf31,0%18,0%38,0%
Aðrar fjárfestingar1,0%0%4,0%
Gildi merki

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður

Almennur opnunartími

Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00

Föstudaga 09:00 – 15:00

Símatími lífeyris-, lána-,
séreignar- og iðgjaldadeildar

Mánudaga – föstudaga 09:00 – 15:00

Sími
515 4700

Netfang
gildi@gildi.is

Kennitala
561195 2779

Póstlisti Gildi
Afþakka pappír

Gildi fyrirmyndar fyrirtæki